- Skólinn
- Frístund
- Fyrirspurnir
- Mötuneytið
- Skólareglur
- Starfsfólk
- Viðburðadagatal
- Skólanámskrá
- Skipurit
- Mat á skólastarfi
- Skólaráð Egilsstaðskóla
- Skólasöngur
- Skólaakstur
- Nám & kennsla
- Foreldrar
- Nemendur
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Heimili og skóli
Heilbrigði byggist jafnt á andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan. Í skólum þarf að skapa jákvæðan skólabrag og heilsueflandi umhverfi þar sem markvisst er hlúð að þroska nemenda og heilbrigði þeirra frá ýmsum hliðum.
Helstu þættir heilbrigðis sem leggja þarf áherslu á eru: jákvæð sjálfsmynd, hreyfing, næring, hvíld, andleg vellíðan, góð samskipti, öryggi, hreinlæti, kynheilbrigði og skilningur á eigin tilfinningum og annarra. Mikilvægt er að skólinn taki mið af þörfum allra nemenda á einstaklingsbundinn hátt. Allir þurfa tækifæri til að njóta styrkleika sinna sem er lykilþáttur í að byggja upp jákvæða sjálfsmynd. Með því að gefa áhugasviðum nemenda rými í skólastarfinu gefst tækifæri til að vinna út frá styrkleikum og áhuga, byggja upp jákvæða sjálfsmynd og efla þannig heilbrigði.
Egilsstaðaskóli er heilsueflandi skóli, í því felst markviss hvatning og fræðsla allt skólaárið um hreyfingu, næringu, góð samskipti, hreinlæti og hvíld. Þættir sem snúa að sjálfsmynd og samskiptum eru einnig til umræðu á bekkjarfundum og viðfangsefni í lífsleikni.