Farsæld barna

Lög um farsæld barna hafa tekið gildi. Þau eiga að sjá til þess að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa og að þau fái rétta aðstoð á réttum tíma, frá réttum aðilum. Með því að tengja þjónustuna saman og vinna í sameiningu að farsæld barna verður auðveldara fyrir börn og foreldra að fá aðstoð við hæfi.

Börn og foreldrar þeirra hafa aðgang að tengilið í heilsugæslu, skóla eða félagsþjónustu. Þar geta þau fengið aðstoð við að sækja viðeigandi þjónustu, án hindrana, á öllum þjónustustigum. Í flóknari málum hafa börn og foreldrar aðgang að málstjóra hjá félagsþjónustu eða þar sem þarfir barna liggja hverju sinni.

Starfsfólki sem vinnur með og fyrir börn ber að vinna saman að farsæld þeirra. Starfsfólk leik-, grunn og framhaldsskóla, félagsþjónustu, íþrótta, tómstunda eða heilbrigðisþjónustu hefur fengið aukna ábyrgð sem felur í sér að koma auga á aðstæður barna og bregðast við strax og þörf er á.

Tilgangur löggjafarinnar er að börn og fjölskyldur falli ekki á milli kerfa og séu ekki send á milli þjónustuaðila innan sveitarfélaga og ríkisstofnana. Börn eiga rétt á að segja sína skoðun um þau málefni sem hafa áhrif á líf þeirra og þau sem veita þjónustu eiga að taka tillit til skoðana barna í samræmi við aldur þeirra og þroska.

Útgangspunkturinn í öllu sem við gerum á að vera barnið og hagsmunir þess.

Ýmsar upplýsingar í tengslum við samþætta þjónustu í þágu farsældar barna:

https://www.farsaeldbarna.is/

https://www.mulathing.is/is/thjonusta/felagsthjonusta/farsaeld-barna