- Skólinn
- Frístund
- Fyrirspurnir
- Mötuneytið
- Skólareglur
- Starfsfólk
- Viðburðadagatal
- Skólanámskrá
- Skipurit
- Mat á skólastarfi
- Skólaráð Egilsstaðskóla
- Skólasöngur
- Skólaakstur
- Nám & kennsla
- Foreldrar
- Nemendur
- Stoðþjónusta
- Hagnýtt
- Heimili og skóli
Egilsstaðaskóli er heildstæður grunnskóli sem fyrst og fremst þjónar nemendum sem búa á Egilsstöðum og í dreifbýlinu sem áður tilheyrði Eiða- og Hjaltastaðaþinghá og Vallahreppi. Skólaárið 2023 - 2024 eru um 415 nemendur í skólanum og um 100 starfsmenn. Aukinn nemendafjöldi og einsetning skóla kallaði á aðgerðir í húsnæðismálum og haustið 2010 var langþráðum áfanga náð, þegar rúmgóð nýbygging var tekin í notkun að fullu og um leið var lokið umfangsmiklum endurbótum á eldra húsnæði skólans.
Allir nemendur hefja skóla á sama tíma eða kl. 8:50 árdegis, en hluti nemenda kemur með skólabílum úr dreifbýlinu.
Gildi skólans eru gleði, virðing og metnaður. Gleði hefur mikil áhrif á líðan okkar, það er mikilvægt að hafa gaman af því sem við erum að gera. Þegar við erum glöð höfum við góð áhrif á aðra og okkur líður vel í návist annarra. Með virðingunni er átt við að allir eigi rétt á að láta sér líða vel í skólanum, fái að njóta sín sem einstaklingar og takist á við verkefni við hæfi. Jafnframt eru hverjum og einum lagðar þær skyldur á herðar að koma fram af virðingu við samnemendur, starfsfólk skóla og aðra þá sem þeir umgangast. Metnaður er að gera ávallt sitt besta og vera stoltur af verkum sínum. Hver einstaklingur býr yfir auði í formi sköpunarkrafts, getu og reynslu. Metnaður felst í því að virkja þennan auð til góðra verka.
Haustið 2023 hófst innleiðing á hugmyndafræðinni "Uppeldi til ábyrgðar". Einnig er í gangi innleiðing leiðsagnarmats á vegum Háskólans á Akureyri.
Skólinn er í samstarfi við Embætti landlæknis um verkefnið Heilsueflandi skóli. Verkefni snýst um heilsueflingu nemenda og starfsfólks. Skólinn er í hópi brautryðjenda í þessum efnum.
Skólastjóri er Kristín G. Magnúsdóttir. Aðstoðarskólastjóri er Dagbjört Kristinsdóttir.
Símanúmer: Frístund 897-0605 Mötuneyti 470 0619