Fullveldishátíðin í Egilsstaðaskóla

Fyrir helgina komu nemendur og starfsfólk Egilsstaðaskóla saman og fögnuðu fullveldi landsins. Nýkjörinn formaður Nemendaráðs Egilsstaðaskóla, Agla Eik Frostadóttir, flutti ávarp og Anna Björk Guðjónsdóttir kennari ávarpaði samkomuna.

Nemendur í Tónlistarskólanum á Egilsstöðum fluttu tónlistaratriði og í lokin sungur allir saman þrjú lög í tilefni af Degi íslenskrar tónlistar.
Aðventan er nú gengin í garð og mun Nemendaráð skólans skipuleggja viðburði í desember sem verða auglýstir í árgöngum á viðburðadagatali á heimasíðunni.