Hrekkjavakan og Svavar Knútur

Það voru margar sérkennilegar verur sem mættu í skólann í morgun tilbúnar í hrylling dagsins! Nemendur og starfsfólk mætti uppábúið og víða var búið að koma upp skreytingum í anda Hrekkjavökunnar enda finnst mörgum þessi dagur skemmtileg tilbreyting frá hversdagsleikanum.
Svavar Knútur hélt tvenna örtónleika fyrir krakkana á miðstigi og elsta stigi sem tóku vel á móti þessum ágæta tónlistarmanni.