Nemendur í 4. bekk hafa undanfarið fjallað um lýðræðislegar kosningar og hvernig hægt er að hafa áhrif á umhverfi sitt. Í kjölfar þess kusu krakkarnir um hugmyndir sem þau höfðu sett fram og skrifuðu svo bréf til sveitarstjóra þar sem hugmyndunum var komið á framfæri.
Til að fylgja erindinu eftir fór hópurinn upp á bæjarskrifstofur og heimsótti Dagmar Ýr sveitarstjóra. Meðfylgjandi er bréfið sem þau skrifuðu og myndir af krökkunum.
Kæra Dagmar, sveitarstjóri Múlaþings
Við í 4. bekk í Egilsstaðaskóla höfum nýlega rætt um lýðræðislegar kosningar og hvernig við getum haft áhrif á nærumhverfi okkar. Í lífsleiknitíma í skólanum kusum við átta hugmyndir sem við teljum að myndu bæta umhverfið okkar mikið. Við viljum því koma þessum hugmyndum á framfæri við ykkur og vonum að þær fái athygli.
Hér eru hugmyndirnar sem við völdum:
1. Moka gangstéttir betur og oftar. Það er ekki gott að þurfa að labba á götunni þegar það er mikill snjór eða ruðningar. Svo eru sumir sem hjóla, eru með barnavagn eða í hjólastól sem komast ekki leiðar sinnar þegar það er mokað illa.
2. Fleiri vatnskranar við íþrótta- eða leikvelli.
3. Hreinsa tjörnina í Tjarnargarðinum.
4. Betri körfuboltavöll í Fellabæ.
5. Fleiri leikvelli og leiktæki fyrir okkar aldurshóp.
6. Vísindi sem námsgrein í Egilsstaðaskóla.
7. Stærra skautasvell og fleiri hjálpargrindur við skautasvellið.
8. Afmarkaður staður á Egilsstöðum þar sem ríkir friður, ró og hæglæti.Það væri hægt að setja upp skilti og hvetja fólk til hæglætis og rólegheita, að það væri bannað að vera með læti á þessu svæði.
Við teljum að þessar breytingar myndu hafa jákvæð áhrif á samfélagið okkar og bæta lífsgæði bæði barna og fullorðinna. Við vonum að sveitarfélagið geti skoðað þessar hugmyndir og kannski tekið fyrstu skrefin í að framkvæma þær.
Við erum spennt fyrir því að sjá hvernig bæjarfélagið okkar getur orðið enn betra fyrir alla, og við erum tilbúin að styðja við verkefni sem tengjast þessum hugmyndum ef það þarf.
Við þökkum ykkur fyrir að taka okkur alvarlega og hlökkum til að heyra frá ykkur.
Með kærri kveðju,
Nemendur í 4. bekk, Egilsstaðaskóla
(Undir þetta rituðu allir nemendur í 4. bekk)