Stutt vika 14. - 16. október en margt í gangi

Síðasta vikan fyrir vetrarfrí er hafin. Það er margt um að vera í skólanum þessa daga og krakkarnir fá heimsóknir frá ýmsum aðilum.

Í dag eru fulltrúar Samtakanna 78 með fræðslu fyrir 3 árganga, 3., 6. og 9. bekk.

Á morgun fer 6. bekkur í Sláturhúsið á leiksýningu um Kjarval og á miðvikudaginn verður kynning á starfsemi Alþingis fyrir 9. og 10. bekk.

Í dag eru kynningarfundir fyrir foreldra/ forsjáraðila en þeir hefjast á stuttri fræðslu í matsal skólans.
Kl. 16. 30 - 17.30 mæta foreldrar/forsjáraðilar barna í 1. - 4. bekk
Kl. 17.30 - 18.30 mæta foreldrar/forsjáraðilar barna í 5. - 7. bekk
Kl. 18.30 - 19.30 mæta foreldrar / forsjáraðilar barna í 8. - 10. bekk